Helga Vala Helgadóttir

Lögmaður
helgavala@lr.is

Sérsvið

Fjölskyldu og erfðaréttur
Málflutningur
Réttargæsla og verjendastörf í sakamálum
Samningaréttur
Stjórnskipunarréttur
Stjórnsýsluréttur
Vinnuréttur

Starfsferill

2024 –  Lögmaður Lögfræðistofu Reykjavíkur
2011 – 2024  Valva lögmenn, eigandi, lögmaður með hléi
2017 – 2023  Alþingismaður, Samfylkingin
2021 – 2023  Þingmaður á ÖSE þingi
2009 – 2011  Fulltrúi Lögron, lögfræðistofa

Menntun

2011  Meistarapróf í lögum frá Háskólanum í Reykjavík
2009  BA próf í lögum frá Háskólanum í Reykjavík
1998  Leikarapróf frá Leiklistaskóla Íslands.
1988  Menntaskólinn í Hamrahlíð

Önnur störf

2000 – 2001  Bylgjan, dagskrárgerð
2001 – 2005  Ríkisútvarpið, dagskrárgerð
2005  Talstöðin dagskrárgerð
2008  Mannlíf, blaðamaður
2000  The New Perspective Theater Company, leikkona
1999   Leikfélag Akureyrar, leikkona og leikstjóri

Stjórnarseta

Íslandspóstur
Þjóðleikhúsráð
Höfundarréttarráð

Félagsstörf

Evrópuhreyfingin, varaformaður
Samfylkingarfélögin í Reykjavík og Bolungarvík, formaður og stjórnarmaður
Félag íslenskra leikara stjórnarmaður
Dansmennt, stjórnarmaður

Um Helgu Völu

Helga Vala lauk ML prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011 og hlaut réttindi héraðsdómslögmanns síðar sama ár. Þá öðlaðist hún rétt til flutnings mála fyrir Landsrétti árið 2023.

Hún stofnaði ásamt fleiri lögmönnum Völvu lögmenn árið 2011 og starfaði þar  til ársins 2017 þegar hún var kjörin á Alþingi sem þingmaður Samfylkingarinnar. Gegndi hún þar ýmsum trúnaðarstörfum, m.a. var hún formaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, velferðarnefnd og þingflokksformaður auk þess að vera þingmaður þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE.

Utan Alþingis hefur Helga Vala gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, setið í stjórn Félags íslenskra leikara, Þjóðleikhúsráði, í stjórn Íslandspósts og Höfundarréttarráði. Þá var hún formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og Bolungarvík.

Helga Vala er menntuð leikkona og starfaði í leikhúsi á Íslandi og í Bretlandi. Þá starfaði hún við fjölmiðla um árabil. Fyrir útskrift úr lagadeild starfaði hún einnig sem löglærður fulltrúi á Lögron – lögfræðistofu Reykjavíkur og nágrennis.

Árið 2024 hóf Helga Vala störf á Lögfræðistofu Reykjavíkur.