Einar Hugi Bjarnason

Hæstaréttarlögmaður
einar (hjá) lr.is

Einar Hugi lauk embættisprófi í lögfræði Háskóla Íslands árið 2005, öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður 2006 og réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti Íslands 2012.

Einar Hugi er einn af eigendum Lögfræðistofu Reykjavíkur ehf. Einar starfaði hjá Mörkinni lögmannsstofu frá 2005 til 2008. Einar var einn stofnenda og eigenda Íslensku lögfræðistofunnar 2008 og starfaði þar til 2014. Einar Hugi rak ásamt fleirum Atlas lögmenn frá 2014 til 2017.

Einar Hugi hefur setið í stjórnum fjölmargra félaga um lengri og skemmri tíma oftast tengt lögmannsstörfum. Frá árinu 2013 hefur Einar sinnt stundakennslu við lagadeild Háskóla Íslands. Einar hefur einnig setið í ýmsum nefndum á vegum hins opinbera. Á árinu 2013 var Einar skipaður í sérfræðingahóp um höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðislána og kosti og galla leiðréttingarsjóðs. Í byrjun árs 2014 var hann skipaður í starfshóp vegna lækkunar á höfuðstól húsnæðislána sem samdi lagafrumvörp um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána og ráðstöfun séreignasparnaðar til greiðslu húsnæðislána. Árið 2015 var Einar Hugi skipaður í stjórnarskrárnefnd 2013-2017.

Sérsvið:
Samningaréttur
Kröfuréttur
Eignarréttur
Skaðabótaréttur
Refsiréttur
Félagaréttur
Skuldaskilaréttur
Málflutningur fyrir dómstólum