Lögfræðistofa Reykjavíkur hefur ávallt lagt mikla áherslu á þjónustu við innlend og erlend fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Meðal fastra viðskiptavina stofunnar eru mörg af stærri fyrirtækjum landsins auk þess sem við vinnum með fjölda lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þá sinnum við ýmsum verkefnum fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.
Stofan hefur ávallt kappkostað að hafa innan sinna raða sérfræðinga með víðtæka reynslu af ráðgjöf til fyrirtækja og lögmenn okkar búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu á lagaumhverfi fyrirtækja hér á landi.
Lögfræðistofa Reykjavíkur hefur auk þess átt náið samstarf við erlendar lögfræðistofur sem gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar upp á vandaða lögfræðiþjónustu víða um heim.
FJÁRMÁLA- OG FÉLAGARÉTTUR
Meðal þeirrar þjónustu sem Lögfræðistofa Reykjavíkur veitir á þessu sviði má nefna ráðgjöf vegna samruna eða yfirtöku fyrirtækja, áreiðanleikakannanir, skattalega ráðgjöf, ráðgjöf við stofnun fyrirtækja, val á félagaformi ásamt viðeigandi skjalagerð, ráðgjöf vegna fjárhaglegrar endurskipulagningar, skiptingu og slit félaga, breytingu á félagaformi, stjórnun aðalfunda og hluthafafunda, ráðgjöf og þjónustu í samskiptum við stjórnvöld og hagsmunagæslu í ágreiningsmálum, jafnt á vettvangi stjórnvalda sem dómstóla.
SAMNINGARGERÐ OG SAMNINGARÉTTUR
Meðal verkefna sem stofan sinnir að staðaldri má nefna sem dæmi samninga um kaup og sölu eigna, samstarfssamninga milli fyrirtækja, samningsgerð vegna útboða og samninga um hugverkaréttindi og einkaleyfi en fjölþætt verkefni stofunnar ná annars yfir allt svið samningaréttarins.
SAMKEPPNISRÉTTUR
Lögfræðistofa Reykjavíkur veitir alhliða lögmannsþjónustu og ráðgjöf á sviði samkeppnisréttar. Meðal verkefna sem við sinnum má nefna hagsmunagæslu fyrir stór og smá fyrirtæki auk samtaka fyrirtækja hvort tveggja gagnvart keppinautum og samkeppnisyfirvöldum.
SKATTARÉTTUR
Meðal þeirrar þjónustu sem Lögfræðistofa Reykjavíkur veitir á þessu sviði má nefna skattaráðgjöf í tengslum við fjárhaglegar endurskipulagningu fyrirtækja, s.s. vegna skiptingar, samruna og slita félaga svo og skattalegar áreiðanleikakannanir. Skattaráðgjöf stofunnar varðar bæði tekjuskatta sem og óbeina skatta eins og virðisaukaskatt. Stofan veitir einnig skattaráðgjöf til einstaklinga og aðstoð við þá vegna samskipta við stjórnvöld. Auk ráðgjafar veitir stofan þjónustu vegna hagsmunagæslu í ágreiningsmálum, jafnt á vettvangi stjórnvalda sem dómstóla.
INNHEIMTA
Þjónustan byggist á áralangri reynslu starfsfólks við innheimtumál af ýmsum toga. Innheimtustofa Reykjavíkur veitir persónulega þjónustu og nálgast verkefnin af fagmennsku, alúð og einurð. Þá hefur starfsfólk Innheimtustofu Reykjavíkur aðgang að öflugum hópi lögmanna Lögfræðistofu Reykjavíkur.
Frekari upplýsingar um starfsemi Innheimtustofu Reykjavíkur veitir Ólafur Garðarsson hrl á netfanginu olafur@lr.is
PERSÓNUVERND
Það verður þó að sýna varkárni við meðferð gagna og upplýsinga. Um leið og eigendur upplýsinga eiga almennt rétt á að hagnýta þær, geta þeir sem upplýsingarnar varða, hinir skráðu aðilar (e. data subjects) einnig átt réttindi sem gefa þarf gaum. Rétt einstaklinga til friðhelgi og einkalífs er verndaður í Stjórnarskrá Lýðveldisins, Mannréttindasáttmála Evrópu, Mannréttindaskrá Evrópusamandsins og Sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins.
Í löggjöf, einkum á vegum Evrópusambandsins, er síaukin áhersla á rétt einstaklinga til að persónuupplýsingar þeirra fari leynt. Þann 25. maí 2018 gengur í gildi verulega hert löggjöf á sviði persónuverndar innan Evrópusambandsins. Íslandi er einnig skylt að lögfesta efni þeirrar tilskipunar. Meðal þeirra meginbreytinga sem hin nýja löggjöf hefur í för með sér eru strangari kröfur til fyrirtækja til að efla öryggi persónuupplýsinga og verulega hert sektarviðurlög ef það öryggi er ekki tryggt.
Lögfræðistofa Reykjavíkur aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að nýta sér gögn sín og upplýsingar þannig að virði þeirra hámarkist, um leið og ýtrustu réttindi viðskiptamanna eru virt. Á meðal lögmanna stofunnar er til að mynda stjórnarmaður í Persónuvernd og þá hafa aðrir lögmenn stundað framhaldsnám og rannsóknir á sviðinu erlendis.