Persónuverndarstefna LR

Lögfræðistofa Reykjavíkur ehf. (LR) kappkostar að tryggja vernd persónuupplýsinga og að vinnsla þeirra sé í samræmi við gildandi lög og reglur.

Persónuverndarstefnan tekur til söfnunar og vinnslu persónuupplýsinga í samskiptum LR við viðskiptamenn sína. Tilgangurinn með persónuverndarstefnu þessari er að upplýsa viðskiptamenn LR um hvernig og hvers vegna persónuupplýsingum er safnað og hvernig þær eru meðhöndlaðar. Persónuverndarstefnan byggist á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Hvaða persónuupplýsingum safnar LR?

LR safnar ýmsum tegundum persónuupplýsinga um viðskiptamenn sína og tengiliði þeirra, sé um lögaðila að ræða. Vinnsla persónuupplýsinga getur t.a.m. varðað:

• samskiptaupplýsingar, svo sem nöfn, heimilisföng eða upplýsingar um dvalarstað, símanúmer og netfang;

• kennitölur

• vegabréfsupplýsingar

• reikningsupplýsingar

• ljósmyndir

• hljóð- og/eða myndbandsupptökur

• viðkvæmar persónuupplýsingar, þ.e. upplýsingar um kynþátt, þjóðernislegan uppruna, stjórnmálaskoðanir, trúarbrögð, lífsskoðun eða aðila að stéttarfélagi, heilsufarsupplýsingar, upplýsingar um kynlíf eða kynhneigð, erfðafræðilegar upplýsingar og lífkennaupplýsingar, sé vinnsla slíkra upplýsinga nauðsynleg vegna mála sem LR rekur fyrir hönd viðskiptamanna sinna.

Hvaðan koma persónuupplýsingarnar?

Oftast er persónuupplýsingunum safnað beint frá viðskiptamönnum.

Dæmi um slíka upplýsingasöfnun eru:

• þegar viðskiptamenn láta LR upplýsingar í té í tengslum við veitta þjónustu

• þegar viðskiptamenn hafa samband við LR. Í sumum tilvikum koma persónuupplýsingarnar frá þriðju aðilum, s.s. þjóðskrá, fjárhagsupplýsingastofum, dómstólum og öðrum opinberum aðilum.

Í hvaða tilgangi vinnur LR með persónuupplýsingar?

• til þess að auðkenna og hafa samband við viðskiptamenn. Vinnsla þessi er nauðsynlegur þáttur í að efna samning um þjónustu milli LR og viðskiptamanna

• til þess að fyrirbyggja hagsmunaárekstra

• til þess að inna af hendi þjónustu við viðskiptamenn, þ.m.t. málflutning fyrir héraðsdómstólum, Landsrétti og Hæstarétti

• til að viðhalda skrá yfir mál viðskiptamanna

• til þess að gera tölfræðilegar eða aðrar rekstrarlegar greiningar á viðskiptamönnum til innanhússnota

• til þess að taka á móti greiðslum frá viðskiptamönnum

Þegar einstaklingar hafa samband við LR í gegnum vefsíðu félagsins eða með tölvupósti er litið svo á að þeir samþykki þar með skráningu og notkun LR á persónuupplýsingunum sem fram koma í viðkomandi samskiptum.

Hvernig varðveitir LR persónuupplýsingar?

LR varðveitir persónuupplýsingar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingar viðskiptamanna gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Þess er meðal annars gætt með aðgangsstýringum að aðeins þeir starfsmenn LR sem á þurfa að halda hafi aðgang að málum viðskiptamanna. LR varðveitir persónuupplýsingar um viðskiptamenn aldrei utan EES-svæðisins.

Viðtakendur persónuupplýsinga

LR miðlar ekki persónuupplýsingum um viðskiptamenn til þriðju aðila nema með ótvíræðu samþykki þeirra eða til þess að uppfylla skyldur samkvæmt samningi eða ef um er að ræða lagaskyldu. Þrátt fyrir framangreint kann LR að miðla persónuupplýsingum um viðskiptamenn til þjónustuaðila sinna, t.d. þeim sem reka hugbúnaðarkerfin sem notuð eru hjá LR. Þjónustuaðilar þessir eru bundnir trúnaði.

LR kann að afhenda löggæsluyfirvöldum og öðrum bærum þriðju aðilum persónuupplýsingar um viðskiptamenn ef LR ber skylda til þess vegna réttarkrafna eða samkvæmt lögum.

Réttindi skráðra einstaklinga

Viðskiptamenn eiga rétt á að fá upplýsingar um og aðgang að persónuupplýsingum um þá sjálfa sem LR hefur með höndum.

Vilji viðskiptamenn fá nánari upplýsingar um eða nýta framangreind réttindi er þeim bent á að hafa samband við persónuverndarfulltrúa, lr@lr.is eða í síma 515-7400.

Breytingar

LR áskilur sér rétt til að breyta persónuverndarstefnu þessari eftir því sem þurfa þykir. LR mun vekja athygli á því ef efnislegar breytingar verða á persónuverndarstefnu þessari.