Berglind Svavarsdóttir

Hæstaréttarlögmaður
berglind (hjá) lr.is

Berglind lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 1989, öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 1995 og réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti Íslands árið 2008. Þá hlaut hún löggildingu sem fasteigna- og skipasali árið 1996. Diploma í stjórnun frá HA 2006. Berglind er ein af eigendum Lögfræðistofu Reykjavíkur ehf. Berglind hefur starfað sem lögmaður frá árinu 1996. Hún rak eigin lögmannsstofu og fasteignasölu á Húsavík frá 1996 til 2007 en hafði áður starfað sem fulltrúi hjá Sýslumanninum á Húsavík í 6 ár og verið staðgengill hans síðasta árið. Berglind var ein af stofnendum Regula lögmannsstofu sem var rekin á Höfn, Húsavík og Egilsstöðum frá 2003 til 2010 og jafnframt í Reykjavík frá 2005. Berglind rak ásamt fleirum Acta lögmannstofu ehf. frá 2011-2016 er Acta sameinaðist Lögfræðistofu Reykjavíkur ehf. Hún var í slitastjórn SPB hf. frá 2009 til 2016. Berglind var formaður Lögmannafélags Íslands 2018-2021 en sat jafnframt í stjórn félagsins frá 2014-2017. Berglind hefur setið í bankaráði Landsbankans hf. frá 2016.

Sérsvið:
Sifja- og erfðaréttur
Kröfuréttur
Skuldaskilaréttur